Tæpur helmingur með verðmerkingar í ólagi

Verðmerkja skal vöru þar sem hún er höfð til sýnis, …
Verðmerkja skal vöru þar sem hún er höfð til sýnis, þ.m.t. í búðargluggum, og þjónustu þar sem hún er boðin. Verðmerking skal vera skýr, aðgengileg og greinileg svo augljóst sé til hvaða vöru eða þjónustu verðmerkingin vísar mbl.is/ÞÖK

Neytendastofa gerði könnun á ástandi verðmerkinga og hvort að það væri ekki samræmi á milli hillu- og kassaverðs hjá 54 verslunum í Hveragerði og á Selfossi. Kom í ljós að verðmerkingar voru ekki í lagi í 23 fyrirtækjum.

Þegar könnuninni var fylgt eftir kom í ljós að níu fyrirtæki höfðu ekki farið eftir fyrirmælum Neytendastofu um að lagfæra verðmerkingarnar hjá sér, að því er segir á vef Neytendastofu.

Þar segir ennfremur, að um sé að ræða þrjár matvöruverslanir, Bónus í Hveragerði og á Selfossi, og Krónuna á Selfossi.

„Í þetta skiptið voru allflestar vörurnar sem skoðaðar voru rétt verðmerktar þó örfá tilvik hafi komið upp þar sem verð vörunnar var hærra á kassa en töluvert var um óverðmerktar vörur í verslununum.

Byggingavöruverslunin Byko á Selfossi hafði bætt ástandið á óverðmerktum vörum en nú var talsvert um ósamræmi á hillu- og kassaverði.

Í Ísbúð Huppu á Selfossi voru enn allar vörur í kæli óverðmerktar. Hjá Apótekaranum í Hveragerði var mikið um óverðmerktar vörur í versluninni eins og í fyrri könnunarferðinni og sömu sögu er að segja um bensínstöðina Olís Arnbergi á Selfossi. Vörur í útstillingarglugga tískufataverslunin Gallerí Ozone voru enn óverðmerktar.

Við seinni könnun á veitingastöðum kom í ljós að veitingastaðurinn Hofland setrið í Hveragerði hafði enn ekki sett inn upplýsingar um magn drykkja matseðilinn,“ að því er segir í tilkynningu Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert