Allt að 16 stiga hiti í dag

Mildast verður sunnan til í dag.
Mildast verður sunnan til í dag. mbl.is/Styrmir Kári

Hiti fer upp í 16 stig í dag og verður mildast syðra. Gert er ráð fyrir því að það hlýni fyrir norðan á morgun, mánudag. 

Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir norðan- og norðvestanátt í dag, 3-10 metrum á sekúndu. Þá verður skýjað með köflum og víða skúrir, einkum inn til landsins síðdegis.

Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður bjart veður á höfuðborgarsvæðinu, hluta Suðurlands og Vestmannaeyjum í dag en víða skýjað og rigning, m.a. á Suðausturlandi og Norðausturlandi, að minnsta kosti fyrri part dags. 

Sjá veðurvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert