Læknar hreinsuðu vökva úr maga Ariel Sharons

Sharon hefur verið í dái í nærri tvo mánuði.
Sharon hefur verið í dái í nærri tvo mánuði. Reuters

Vökvi, sem hefur safnast fyrir í maga Ariel Sharons, forsætisráðherra Ísraels, var hreinsaður af læknum í dag að sögn talsmanns Hadassah sjúkrahússins í Jerúsalem.

Sharon, sem hefur verið í dái undanfarnar vikur, fór ekki í aðgerð og ástand hans hefur ekkert breyst að sögn talsmanns sjúkrahússins.

Hann segir að magi Sharons hafi verið speglaður og í ljós hafi komið að talsverður vökvi hafi safnast þar fyrir. Hann hafi verið hreinsaður í kjölfarið án þess að eiginleg aðgerð hafi verið framkvæmd.

11. febrúar sl. fór Sharon í neyðaraðgerð þar sem hluti af þörmum hans var fjarlægður.

Sharon hefur verið í dái frá því að hann fékk alvarlegt heilablóðfall 4. janúar sl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert