Gummi Ben: Viljum taka fleiri stig

„Þetta er kannski sterkt stig fyrir okkur og kannski hefðum við tekið því fyrir leik ef okkur hefði verið boðið það. En eins og leikurinn spilaðist voru tækifæri til að vinna hreinlega þennan leik,“ sagði Guðmundur Benediktsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 1:1-jafntefli liðsins gegn KR á KR-velli í 13. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

„Við viljum fleiri stig. Það eru alveg hreinar línur. Við vorum súrir eftir síðasta leik, því þar voru líka tækifæri til að taka þrjú stig. Í báðum þessum leikjum erum við líka manni fleiri um tíma og höfum ekki spilað nægilega vel úr því. En ég get ekki kvartað undan mínu liði því menn hafa lagt allt í sölurnar,“ sagði Guðmundur meðal annars í viðtali eftir leikinn.

Viðtalið við Guðmund Benediktsson má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert