Einn þekktasti íþróttablaðamaður heims, Fabrizio Romano, segir að ítalska knattspyrnufélagið Genoa hafi ekki hafið viðræður af alvöru við neitt félag um landsliðsmanninn Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson hefur farið á kostum með Genoa á tímabilinu og var frammistaða hans með íslenska landsliðinu í umspilinu fyrir EM ekki að minnka áhugann á honum.
Ítalski miðilinn virti Gazzetta dello Sport fullyrti um daginn að stórlið Inter Mílanó væri komið með yfirhöndina í kapphlaupinu um Albert. Tók miðilinn þó fram að það væri frá hlið Alberts.
Fabrizio Romano nefnir Inter ekki sérstaklega og segir að mörg félög séu á eftir honum en að engin tilboð hafi borist enn. Líklegt þykir að Albert fari í sumar og eru væntanleg félagaskipti hans helsta umræðan í ítalska boltanum um þessar mundir.
🇮🇸 Genoa anticipate important bids for Albert Gudmundsson this summer after excellent season — but haven’t started concrete talks with any club yet.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 28, 2024
Price tag expected to be around €25/30m and Genoa could also be open to include players in the deal. pic.twitter.com/0pjOJkDD2t