Haraldur í 13. sæti í Suður-Afríku

Haraldur Franklín Magnús.
Haraldur Franklín Magnús. mbl.is/Kristinn Magnússon

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hafnaði í 13. sæti á Bain´s Whisky Cape Town-mótinu í Höfðaborg í Suður-Afríku en mótinu lauk í dag en mótið var hluti af Evrópumótaröðinni, þeirri næststerkustu í heimi.

Haraldur Frankín lék fjórða og síðasta hringinn í dag á samtals 66 höggum eða sex höggum undir pari en hann fékk sjö fugla á hringnum og einn skolla.

Haraldur deildi efsta sætinu eftir fyrstu tvo hringina en honum fataðist flugið á þriðja hringnum í gær þar sem hann lék á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari vallarins.

Haraldur lék á samtals 277 höggum eða ellefu höggum undir pari og deildi þrettánda sætinu ásamt fimm öðrum kylfingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert