Selfoss í úrslit umspilsins

Dijana Radojevic og samherjar í Selfossliðinu höfðu betur gegn HK.
Dijana Radojevic og samherjar í Selfossliðinu höfðu betur gegn HK. mbl.is/Gollil

Selfyssingar eru komnir í úrslit í umspilinu um sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik á næsta tímabili eftir sigur á HK, 23:21, í Digranesi í dag.

Staðan í hálfleik var 13:10 fyrir Selfyssinga sem þar með unnu einvígið 2:0 og mæta annaðhvort KA/Þór eða FH í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild.

Selfoss hafnaði í sjöunda og næstneðsta sæti Olísdeildar kvenna í vetur en HK í fjórða sæti 1. deildar.

Kristrún Steinþórsdóttir skoraði 6 mörk fyrir Selfoss, Diana Radojevic 4 og Adina Maria Ghidoarca 4 en hjá HK var Þórhildur Braga Þórðardóttir með 7 mörk og Kolbrún Arna Garðarsdóttir 5.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert