Yfirgefur Hafnarfjörðinn

Osku Heinonen í leik með Haukum gegn Álftanesi.
Osku Heinonen í leik með Haukum gegn Álftanesi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Finnski körfuknattleiksmaðurinn Osku Heinonen hefur yfirgefið Hauka og samið við Chiusi í B-deild Ítalíu.

Heinonen hefur verið einn besti leikmaður Hauka á tímabilinu, en liðið hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er leiktíðar. 

Haukar voru hársbreidd frá undanúrslitum Íslandsmótsins á síðustu leiktíð, en komast ekki ofar en tíunda sæti í tveimur síðustu umferðum úrvalsdeildarinnar á yfirstandandi leiktíð.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert