Starfsmaður Google meðal látinna

Dan Fredinburg
Dan Fredinburg Instagram/Dan Fredinburg

Framkvæmdastjóri hjá Google er meðal þeirra tíu sem létu lífið í grunnbúðum Everest þegar snjóflóð féll á búðirnar eftir að jarðskjálfti skók Nepal í morgun.  Fjölskylda hans og fyrirtækið hafa staðfest þetta.

Maðurinn hét Dan Fredinburg. Hann ætlaði að klífa Evest ásamt þremur vinnufélögum sínum. „Því miður misstum við einn af félögum okkar í þessum harmleik,“ skrifaði samstarfsmaður hans á bloggsíðu sína í dag.

Hinir starfsmennirnir lifðu af og verða þeir sóttir eins fljótt og auðið er. Google mun gefa eina milljón bandaríkjadala, eða rúmar 136 milljónir íslenskra króna til hjálparstarfs vegna skjálftans.

Systir mannsins segir hann hafa látið lífið af völdum höfuðáverka sem hann hlaut er snjóflóðið féll á búðirnar. Hún þakkar kveðjur sem fjölskyldan hefur fengið. „Hann var og er okkur allt,“ skrifaði hún í kveðju sem fylgdi með mynd sem hún deildi á Instagram-aðgangi Fredinburg í dag.

„Þetta er Megan, litla systir Dan. Mér þykir fyrir því að þurfa að greina ykkur öllum sem elskuðu hann að Dan hlaut alvarlega höfuðáverka í snjóflóðinu sem féll í Everest í morgun og lifði ekki af,“ segir einnig í kveðjunni.

Fredinburg lýsir sjálfum sér sem ævintýramanni og orkumiklum verkfræðingi á Twitter-aðgangi sínum. Síðustu dagana sem hann lifði deildi hann fjölmörgum myndum frá ferð sinni um Nepal og Everest á Instagram. Tjaldbúðir hópsins sem Fredinburg fylgdi eru rétt við Khumbu-ísfallið.

Yfirvöld í Nepal hafa staðfest að rúmlega 1.200 manns hafi látið lífið í dag af völdum skjálftans.

This is Dans little sister Megan. I regret to inform all who loved him that during the avalanche on Everest early this morning our Dan suffered from a major head injury and didn't make it. We appreciate all of the love that has been sent our way thus far and know his soul and his spirit will live on in so many of us. All our love and thanks to those who shared this life with our favorite hilarious strong willed man. He was and is everything to us. Thank you.

A photo posted by Dan Fredinburg (@danfredinburg) on Apr 25, 2015 at 11:27am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert