Búast við nýjum tilboðum á morgun

Eitt af fundarherbergjum ríkissáttasemjara.
Eitt af fundarherbergjum ríkissáttasemjara. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Boðað hefur verið til funda í kjaradeilum BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við íslenska ríkið á morgun. Fyrst funda samninganefndir BHM og ríkisins klukkan 11 og því næst, klukkan 13:30 funda samninganefndir hjúkrunarfræðinga og ríkisins.

Ólafur G. Skúlason, formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hafði ekki heyrt af því að breyting hafi orðið á stöðu kjaradeilunnar þegar mbl.is náði af honum tali. Hinsvegar fékkst staðfest frá embætti ríkissáttasemjara að búist væri við nýjum tilboðum frá samninganefnd ríkisins í báðum deilum á fundum morgundagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert