Bíll valt á ísuðum vegi við Dýralæk

Flughált var á veginum þar sem bíllinn valt.
Flughált var á veginum þar sem bíllinn valt. Ljósmynd/ÁF

Bíll valt á ísuðum vegi í nágrenni Álftavers á Suðurlandi. Einn maður var í bílnum og voru lögreglubíll frá Vík og sjúkrabíll sendir á vettvang. Sjúkrabílnum var þó snúið frá þar sem maðurinn var sjálfur kominn út úr bílnum og ekki með neina áberandi áverka.

Að sögn lögreglu var flughált á vettvangi, en bíllinn valt vestan við Dýralæk. Dráttarbíll sendur á staðinn til að fjarlægja bifreiðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert