174 ökumenn undir áhrifum

Alls reyndust 99 ökumenn vera dópaðir í umferðinni í janúar …
Alls reyndust 99 ökumenn vera dópaðir í umferðinni í janúar en þetta eru bara þeir sem lögreglan á höfuðborgasvæðinu stöðvaði. AFP

Alls stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu 174 ökumenn í janúar fyrir að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Fleiri ökumenn reyndust undir áhrifum fíkniefna en áfengis eða 99 talsins og er það fjölgun frá því í desember en þá voru 90 ökumenn undir áhrifum fíkniefna. 

Samkvæmt afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar er þetta mikil aukning eða um 43% miðað við meðalfjölda ökumanna sem eru stöðvaðir undir áhrifum fíkniefna í janúar undanfarin þrjú ár. Undanfarna tólf mánuði hafa aldrei jafnmargir ökumenn verið teknir undir áhrifum fíkniefna í einum mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert