Með 350 g af kókaíni í nærbuxunum

Kókaíninu var fyrirkomið í pakka sem reyndist innihalda um 350 …
Kókaíninu var fyrirkomið í pakka sem reyndist innihalda um 350 grömm af efninu og hafði verið saumaður fastur í nærbuxur mannsins. Mynd úr safni. AFP

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu í síðasta mánuði erlendan karlmann sem reyndist vera með umtalsvert magn af kókaíni innan klæða. Kókaíninu var fyrirkomið í pakka sem reyndist innihalda um 350 grömm af efninu og hafði verið saumaður fastur í nærbuxur mannsins.

Tollverðir lögðu hald á efnið að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Tollinum.

Maðurinn hefur verið búsettur hér á landi um skeið, en var að koma frá Barcelóna á Spáni. Í för með honum var kona og handtók lögreglan á Suðurnesjum þau bæði. Voru þau úrskurðuð í gæsluvarðhald í tengslum við rannsóknina, en hafa nú verið látin laus og er rannsókn málsins á lokastigi samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert