Leikmaður Newcastle á reynslu hjá FH

Kyle Cameron er á reynslu hjá FH.
Kyle Cameron er á reynslu hjá FH. Ljósmynd/Heimasíða Newcastle

Kyle Cameron, tvítugur Englendingur, æfir þessa dagana með knattspyrnuliði FH. Cameron er samningsbundinn enska félaginu Newcastle, en hann hefur ekki enn spilað með aðalliði félagsins. Cameron spilar sem miðvörður. 

Hann á leiki með Workington, York City og Newport County, þar sem hann hefur verið á láni. Newport leikur í 4. efstu deild Englands og þar spilaði Cameron sex leiki á þessu tímabili, áður en hann sneri aftur til Newcastle. 

Ólafur Páll Snorrason, aðstoðarþjálfari FH, staðfesti í viðtali við fotbolti.net í kvöld að Cameron væri að æfa með félaginu, en að það ætti eftir að taka ákvörðun um hvort honum verði boðinn samningur, en hægt er að sjá viðtalið í heild sinni með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert