Bacca tryggði Kólumbíu bronsið

Carlos Bacca fagnar sigurmarki sínu.
Carlos Bacca fagnar sigurmarki sínu. AFP

AC Milan-framherjinn Carlos Bacca sá um að tryggja Kólumbíu bronsverðlaunin í Ameríkubikarnum í knattspyrnu, Copa America, í nótt.

Bacca skoraði eina markið í sigri Kólumbíu á Bandaríkjunum, en markið skoraði hann í fyrri hálfleik eftir frábæra sókn. James Rodriguez lyfti boltanum glæsilega yfir vörn Bandaríkjanna á Santiago Arias sem skallaði boltann þvert fyrir markið á Bacca sem skoraði auðveldlega.

Bandaríkin gerðu sitt besta til að jafna metin og átti Bobby Wood skot í stöng. Juan Cuadrado lét einnig reyna á tréverkið fyrir Kólumbíu en hann vippaði boltanum yfir Tim Howard í þverslána.

Síle og Argentína mætast í úrslitaleik mótsins í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert