Króatar rétt mörðu Kósóvó

Króatar fagna sigurmarki Vida í dag.
Króatar fagna sigurmarki Vida í dag. AFP

Króatar endurheimtu toppsætið í I-riðli okkar í Íslendinga í undankeppni HM í knattspyrnu er þeir rétt mörðu Kósóvó, 1:0, í leik sem var frestað. Leikurinn hófst í gær en var þá flautaður af eftir 21. mínútna leik vegna mikilla rigninga í Króatíu og slæms ástands Maksimir leikvangsins í Zagreb.

Domagoj Vida skoraði sigurmark leiksins á 74. mínútu.

Króatar hafa 16 stig í 1. sæti og er þremur stigum á undan Íslandi á ný sem er í 3. sæti með 13 stig. Úkraína hefur 14 stig í 2. sætinu en Ísland mætir Úkraínumönnum á þriðjudag í afar mikilvægum leik í riðlinum. Tyrkir hafa 11 stig í 4. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert