Iniesta fær lífstíðarsamning hjá Barcelona

Andrés Iniesta.
Andrés Iniesta. AFP

Andrés Iniesta hefur skrifað undir nýjan samning við Barcelona, en það sem vekur athygli er að hann er ótímabundinn.

Hinn 33 ára gamli Iniesta er goðsögn hjá félaginu og er samningurinn í gildi þar til hann leggur skóna á hilluna – hvenær svo sem það verður. Hann hefur verið hjá félaginu í 21 ár eftir að hafa komið inn í unglingastarfið þegar hann var 12 ára.

Iniesta spilaði sinn fyrsta leik með aðalliðinu fyrir 15 árum og hefur síðan spilað 639 leiki með liðinu. Aðeins Xavi hefur spilað fleiri leiki.

Á tíma sínum hefur hann orðið átta sinnum spænskur meistari, unnið Meistaradeildina fjórum sinnum og verið fyrirliði frá árinu 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert