Ólafur fór mikinn gegn Atla

Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Árni Sæberg

Ólafur Guðmundsson lét mikið að sér kveða þegar Kristianstad vann Sävehof öðru sinni í einvígi liðanna í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn í handknattleik.

Ólafur skoraði sex mörk fyrir meistarana sem unnu sex marka sigur, 35:29, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik 17:14. Atli Ævar Ingólfsson skoraði tvö mörk fyrir Sävehof.

Kristianstad vann fyrsta leik liðanna á sunnudag með eins marks mun, 29:28, og er því 2:0 yfir í einvíginu. Þriðji leikurinn fer fram á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert