Gleðifréttir fyrir Eyjaliðið

Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Handknattleikskonan Birna Berg Haraldsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. 

Birna hefur verið með betri leikmönnum deildarinnar síðustu árin en hún gekk til liðs við ÍBV árið 2020. Þá skoraði hún 97 mörk í fimmtán leikjum í úrvalsdeildinni sem lauk síðustu helgi. 

Lék hún stórt hlutverk í Eyjaliðinu sem varð bikar- og deildarmeistari árið 2023.

Eyjakonan hefur komið við víða en hún hefur einnig leikið með Fram og FH hér heima. Þá hefur hún leikið með félagsliðum á Norðurlöndunum og í Þýskalandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert