Hörð keppni um markakóngstitilinn

Dragan Gajic er markahæstur á HM.
Dragan Gajic er markahæstur á HM. AFP

Það er harður slagur um markakóngstitilinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar.

Slóvenski hornamaðurinn Dragan Gajic er markahæstur eins og hann hefur verið nær allt mótið. Hann hefur skorað 56 mörk, einu meira en einn af „útlendingunum“ í liði Katar, Zarko Markocic.

Markahæstu leikmenn eru:

56 - Dragan Gajic, Slóveníu
55 - Zarko Markovic, Katar
52 - Rodrigo Salinas, Síle
45 - Kirl Lazarov, Makedóníu
43 - Siarhei Rutenka, H-Rússlandi
42 - Robert Weber, Austurríki
 

Guðjón Valur Sigurðsson er í 16.-19. sæti á markalistanum með 31 mark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert