Kúnum á Helluvaði hleypt út í sumarið

Fjögugt var að Helluvaði þegar kúnum var hleypt út í …
Fjögugt var að Helluvaði þegar kúnum var hleypt út í fyrravor. Ljósmynd/Helga Hjaltadóttir

Kúnum á Helluvaði í Rangárvallasýslu verður hleypt út í sumarið með tilheyrandi hoppi og skoppi sunnudaginn 31. maí kl 13:00. Af því tilefni bjóða bændurnir Anna María og Ari enn og aftur heim til sín.

Sláturhúsið á Hellu ætlar að gefa gestunum að smakka á grillkjöti, MS býður börnunum upp á kókómjólk og bændurnir gefa þeim sem vilja að smakka ábrysti með kanil. „Allir eru hjartanlega velkomnir með góða skapið og ekkert kostar inn,“ segir í tilkynningu.

Helluvað er rétt við Hellu og ekið er í gegnum þorpið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert