Þegar Dolly Parton var vígð inn í Frægðarhöll rokksins í fyrra roðnaði okkar kona lítið eitt bak við allan andlitsfarðann enda fannst henni hún þess ekki umkomin að ganga hnarrreist þangað inn – af mjög einfaldri ástæðu: „Ég er ekki rokkari!“ Meira
Ballett í nafni hinnar fornfrægu bresku rokksveitar Black Sabbath er nú væntanlegur á fjalirnar í Birmingham Hippodrome í haust og verður frumsýndur þar, í „fæðingarborg“ Black Sabbath. Meira
Í dag eru 30 ár síðan breska þungarokksveitin Iron Maiden, með Bruce Dickinson söngvara í broddi fylkingar, hélt fyrri tónleika sína á Íslandi, í Laugardalshöll föstudaginn 5. júní 1992, opnunartónleika Fear of the Dark-ferðalagsins. Gísli Gíslason lögmaður var annar fulltrúa Íslands við innflutning sveitarinnar og sagði mbl.is af eftirminnilegum degi. Meira
Bandaríski tónlistarmaðurinn Jeff Ament, sem þekktastur er fyrir að vera bassaleikari hljómsveitarinnar Pearl Jam, segist ekki geta lifað án íslensku plötunnar Ágætis byrjun eftir Sigur Rós. Meira
Aron Can svaraði tuttugu ógeðslega mikilvægum spurningum í Síðdegisþættinum. Meira
Síðasti þátturinn í seríunni „Það er komin Helgi“ í Sjónvarpi Símans verður í kvöld en liðlega ár er síðan Helgi Björns og Reiðmenn vindanna hófu að létta landsmönnum lund með vikulegum skemmtiþáttum. Meira
Staðfest var í dag að Hæstiréttur Bandaríkjanna ætli sér ekki að fjalla um höfundarréttarmál sem höfðað var á hendur rokkhljómsveitinni Led Zeppelin vegna mögulegs stuldar á hinu fræga upphafsriffi lagsins, sem heyrst hefur í mörgum gítarbúðum. Er því staðfest að Jimmy Page og Robert Plant teljast höfundar þess. Meira
Stórsveitin The Rolling Stones gefur í dag, miðvikudag, út lag sem hefur aldrei áður verið gefið út, lagið Scarlet sem var tekið upp í október árið 1974 ásamt stórstjörnunni og stofnanda Led Zeppelin, Jimmy Page. Meira
Stefán Halldórsson blaðamaður kallaði tónleika bresku rokksveitarinnar Led Zeppelin í Laugardalshöll 22. júní 1970 „tvo æðisgengna klukkutíma“ auk þess sem hann rakti 42 klukkustunda dvöl Zeppelin-manna á Íslandi nokkuð nákvæmlega frá því þeir lentu í Keflavík með Gullfaxa Flugfélags Íslands upp úr hádegi daginn fyrir tónleikana fyrir 50 árum. Meira
Friðrik Karlsson gítarleikari fagnaði sextugsafmæli sínu nýverið í skugga kórónuveiru auk þess sem tónleikaför þeirra félaga í Mezzoforte um Noreg var frestað fram á haust. Friðrik ræddi ferilinn við mbl.is, meðal annars 18 ára búsetu í Bretlandi, kveðjustund þeirra Bakkusar, sjósund, hugleiðslu og breytta tíma í tekjuöflun tónlistarmanna. Meira
„Versta ljósmyndin mín var tekin þegar ég vann í fyrsta skipti með Led Zeppelin árið 1979. Ég var ungur að árum og þótti mikið til þeirra kappa koma. Robert Plant kom upp að mér og spurði: „Kanntu að taka Robert Plant-mynd?“ Síðan ýtti hann í bringuna á mér og sagði mjög kvikindislega: „Snöggt.““ Meira
Liðsmenn bresku rokkhljómsveitarinnar Led Zeppelin eru án efa í sjöunda himni eftir að hafa unnið sigur fyrir dómstólum í deilu sem hefur staðið lengi yfir varðandi upphafsstefið að laginu „Stairway to Heaven“, en því var haldið fram að því hefði verið stolið. Meira
13 ára töffarar á Selfossi stefndu hátt og ætluðu að spila harða tónlist í ætt við Deep Purple. Meira
Í geymslunni getur leynst fjársjóður því gamlar vínilplötur ganga kaupum og sölum. Nú hefur verið birt viðmiðunarverð fyrir helstu dýrgripi tónlistarsögunnar. Meira
Residents of the village of Fáskrúðsfjörður, the East Fjords, population 662, gathered by the harbor recently to watch Italian pianist and composer Constantino Carrara perform. Meira
Börn og aðrir bæjarbúar á Fáskrúðsfirði flykktust niður að bryggju á dögunum til að fylgjast með gerð tónlistarmyndbands píanósnillingsins Costantino Carrara. Meira
Bono, Elton John, Iggy Pop og Tom Waits eru meðal gesta á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes en hátíðin verður sett á morgun enda ekki furða þar sem tónlistarfólk er áberandi í myndum hátíðarinnar í ár. Meira
Breiðskífa Kristínar Önnu Valtýsdóttur, I Must Be the Devil, kemur út á morgun á vegum útgáfunnar Bel-Air Glamour Records. Umslag plötunnar hefur þegar vakið mikla athygli en á því má sjá hóp nakinna karlmanna sem margir hverjir eru þjóðkunnir og Kristínu fullklædda. Meira
Breska rokkgoðið Robert Plant mun koma fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem haldin verður í Laugardalnum helgina 21.-23. júní. Plant stígur á svið á sunnudeginum en þá verða liðin 49 ár, nánast upp á dag, frá því að hann kom fram með Led Zeppelin í Laugardalshöllinni. Meira
Nágrannarnir og stórstjörnurnar Robbie Williams og Jimmy Page halda áfram að elda grátt silfur en samkvæmt frétt BBC hefur Williams m.a. spilað rokktónlist á háum hljóðstyrk og leikið og hermt eftir Robert Plant, fyrrverandi söngvara og samstarfsmanni Page úr Led Zeppelin, til þess eins að fara í taugarnar á Page. Meira