Tveir heimsmeistarar í hópi íslenska liðsins

Hér má sjá heimsmeistarana, Elvar og Fjalladís, þjóta eftir holdvotri …
Hér má sjá heimsmeistarana, Elvar og Fjalladís, þjóta eftir holdvotri brautinni. Ljósmynd/Jón Björnsson

Fyrstu heimsmeistaratitlar íslenska landsliðsins á Heimsleikum íslenska hestsins í Hollandi þetta árið eru í höfn, en í slagviðri kvöldsins var keppt í gæðingaskeiði. Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum stóðu uppi sem sigurvegarar og þar með heimsmeistarar í flokki fullorðinna með einkunnina 8,2. 

Í flokki ungmenna sigraði Benedikt Ólafsson á Leiru-Björk, en þau voru jafnframt næstefst óháð aldri með einkunnina 8,0. Benedikt ræddi við mbl.is í aðdraganda mótsins um sögu sína og Leiru-Bjarkar. 

Fimm af sex fulltrúum Íslands efstir

Forkynning kynbótasýninga fór einnig fram í dag. Þar átti Ísland sex fulltrúa sem allir stóðu sig frábærlega.

Fyrst í braut var Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir en hún mætti með hryssuna Ársól frá Sauðanesi. Sýningin hjá Aðalheiði og Ársól var glæsileg og einkunn upp á 8,38 vel verðskulduð og skilaði Ársól efstri. Í flokki fimm vetra stóðhesta var okkar fulltrúi Höfði frá Bergi og sýnandi Þorgeir Ólafsson. Þeir áttu einnig glæsilega sýningu og hlutu 8,45 í aðaleinkunn og urðu þar með efstir í flokki fimm vetra stóðhesta fyrir yfirlit.

Hrönn frá Fákshólum og Jakob Svavar Sigurðsson voru fulltrúar okkar í flokki sex vetra hryssna. Hrönn og Pála vom vom Kronshof voru jafnar í efsta sæti í flokk sex vetra hryssna fyrir mótið með 8,55 í einkunn. 

Í flokki sex vetra stóðhesta var það Geisli frá Árbæ og Árni Björn Pálsson sem voru fulltrúar Íslands. Þeir áttu flotta sýningu sem skilaði þeim 8,52 í aðaleinkunn. Þeir eru því efstir fyrir yfirlit ásamt Hraða frá Skovhuset sem einnig hlaut 8,52 í dag.

Í flokki sjö vetra og eldri hryssna sýndi Árni Björn hryssuna Kötlu frá Hemlu II. Þau hlutu 8,75 í aðaleinkunn. Sýningin þeirra var einkar vel heppnuð og skilaði þeim efstum fyrir yfirlitið.

Síðastir voru Hersir frá Húsavík og Teitur Árnason. Þeir fylgdu eftir árangri íslenska hópsins með glæsilegri sýningu og hlutu 8,55 í aðaleinkunn og enduðu þar með næstefstir fyrir yfirlitið.

Katla frá Hemlum var hæst dæmd eftir fyrsta yfirlit kynbótahrossa.
Katla frá Hemlum var hæst dæmd eftir fyrsta yfirlit kynbótahrossa. Ljósmynd/Jón Björnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert